21janúar

Laugardagskvöld

Ég er eitthvað veikur held ég. Ég er
að verða 17 ára gamall og er ekki að missa mig á hverri helgi í óhóflegri áfengisdrykkjju. Ég er á því að það sé óeðlilegt ef maður miðar við jafnaldra sína og náunga. Ég man fyrir svona cirka 6 mánuðum var það eina sem komst í hausinn á manni var næsta fyllerí. Systir mín hún Elísa er edrú heila helgi núna í fyrsta skipti síðan Liverpool urðu englandsmeistarar. Það er LANGT síðan btw fyrir fáfróða. En til hamingju með það Elísa=) finnur maður lykt af hollari lífstíl? farinn á fullu í íþróttirnar og edrú heila helgi.
  Eins og sumir hafa tekið eftir er maður farinn að stunda póker í hóflegu magni. fór í fámennan en góðmennan póker með Hjalta, Jón I og Unnþóri og endaði sigurrununa mína í vikunni og endaði þriðji. Eftir á sýndi Unnþór að hann var greinilega stunt double í FatF: tokyo drift með snilldar leikni á Rav4 hennar Hugljúfar.
  Annars var ég hjá konunni minni seinustu nótt og bið ég hana afsökunnar að hafa steinrotast og látið hana óttast um líf mitt. Annars er hún mjög góð við mig þessi elska:)

Kveðja, Hákon Nótt

P.S. ég vil segja þeim manni sem var að elda á fernandos í dag að ef ég fæ aftur grautlinar franskar og enga kokteilsósu þá mölbrýt ég á honum hnéskeljarnar.

2 P.S. ég er að pæla að hafa 2. p.s. í hverju einasta bloggi.
pæling
21. janúar 2007 klukkan 08:52
Hákon D.
6 athugasemdir
20janúar

Blogg nr. 2

Það var minningarathöfn í skólanum í dag. Ég var ekki par sáttur með hana. Þegar Ingibjörg skólastjóri talaði um að allir ættu að biðja til guðs og Magnús fór með faðir vorið. Þetta fannst mér svolítið ósanngjarnt. Hvað með þá sem trúa ekki á guð? ég er einn af þeim og auðvitað bið ég fyrir henni Örnu og aumingja stelpunni með krabbameinið, en ekki til guðs. Og með faðir vorið þá var ég ekkert að vera neinn svaka rebel og hunsa þetta heldur fylgdi ég bara straumnum og spennti greipar og laut höfði. Ég hefði kosið það sem Ingibjörg og haldið hlutleysi mínu og sleppt guð-talinu. En það er einungis mín skoðun og ég vil ekki vera með leiðindi.
En annars er það ár í dag síðan Þórey dó og maður tók sér nú aðeins tíma til að hugsa í dag og minnast þessara sárafáu stunda sem við tjáðum okkur í formi tjáskipta.
Kerti
Alberta heimtaði umsögn um sig hérna á síðunni þar sem ég vældi í henni að fá mína á hennar síðu. En nei, hún þarf nú aðeins að væla meira ef hún vill fá bio hér á þessa síðu. Hún er aðeins fyrir útvalda þessi sko;). Ein beiðni í náttúrufræðitíma nægjir ekki. heyriru það abbzter?

En jæja, ekki lengra í bili.

P.S. ég vann pening í gær, það var gaman

2. P.S. Grænukorn voru eitt sinn sér lífverur en búa nú í samveru með plöntufrumum.......jehhh!!!!
20. janúar 2007 klukkan 00:18
Hákon D.
2 athugasemdir
18janúar

Blogg

Eftir mikla íhugun og vægast sagt margar áskoranir hef ég tekið þá ákvörðun í sambandi við mína nánustu hef ég ákveðið að gera mínar skoðanir og helstu hugsanir opinberar fyrir öllum að lesa á veraldarvefnum. Því ert þú, lesandi góður þeirrar gæfu aðnjótandi að lesa fyrsta bloggið á þessari síðu. Til hamingju. Þú færð þau verðlaun að þú mátt lýsa skoðun þinn á mínum færslum í þartilgerðum dálki sérhannaður fyrir lesendur. Þetta mun vera í fyrsta og seinasta skipti sem ég bið um ''komment:*'' á síðunni minni. Því blogg er í raun vefdagbók og ekki myndi ég vilja skoðun þína á dagbók minni í alvöru heiminum. Eftir íhugun um hvernig síða þetta eigi að vera hef ég þrengt valmöguleikanna niður í fjóra.

-Nöldur

-Heimsspeki

-Rugl

-Lífsálit

Þannig að því miður munið þið ekki sjá; ''ég ætla bara að segja frá deginum í dag hvað ég gerði og solleis OMG.'' Því að mínu mati er blogg ekki til þess gert heldur til að opinbera skoðanir einstaklingsins fyrir umheiminum. Og ég er strax búinn að brjóta loforð mitt héðan að ofan með þig að spyrja ykkur um ykkar álit á gerð bloggsins. Valmöguleika má sjá hér að ofan.

En að öðru:). Portúglasferð er á döfinni um páskana og svei mér þá ef ég er ekki á góðu róli í 21.sæti um byrjunarliðssæti. Maður er búinn að vera að trassa á æfingar og þær sem maður hefur látið sjá sig hefur maður slegið öll met í ömurleikanum. Kannski er Badminton mín íþrótt eftir allt saman

Ég náði einni og einni spurningu hjá ''strákunum okkar'' í gettu betur og get verið stoltur af frammistöðu þeirra. Þó ætla ég að setja út á 2 atriði hjá spyrlinum Sigmari og spurningahöfundi keppnarinnar, Davíð að ég held að hann heiti. Sigmar þarf að æfa sig að segja ''Amare Stoudemire'', hann sagði það alveg eins og það er skrifað en réttur framburður er að ég held allveg örugglega ''Amar Stádamær'' á góðri íslensku. Annað er að það var spurt um stærstu eyjuna á Írlandshafi. Svarið er Eyjan Mön en hjá þeim var það bara Mön. Hún heitir Eyjan Mön, eða The isle of Man.

En þetta er gott í bili, ofurbloggarinn Hákon kveður í bili
18. janúar 2007 klukkan 06:01
Hákon D.
8 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hákon D.
  • Netfang: mamma_tin_er_beygla@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Hjúskaparstaða: Laus
  • Um mig: ég er betri en þú

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...