2 deild?

BÍ/Bolungarvík sigraði Kára örugglega í dag 3-1 á skeiðisvelli í dag. Augnablik tapaði 1-2 fyrir Víði í Garði. Það þýðir að BÍ/Bol eru komnir í úrslitakeppni 3.deildar og eiga þar að etja kappi við Gróttu. 2. deildin er byrjuð að sjást við sjóndeildarhringinn og markmiðið sem stefnt var á síðan nýr þjálfari var ráðinn til liðsins. Ljóst er að með honum hefur knattspyrna meistaraflokks verið lyft uppá hærra plan og er þetta margt honum að þakka. En já, 25 ágúst kl. 14:00, þú þar?


Stífar æfingar í vor að skila árangri? Portúgal 2007


Ég og Guðmundur bróðir minn vorum að rifja upp þegar við fórum saman á króksmót. Það var árið 1996, sem er fyrir 11 árum! ég er orðinn einum of gamall, fer bráðlega að fá gráa fiðringinn. En þá var sko gaman að spila fótbolta, ég skoraði einhver 8-10 mörk á mótinu sem þykir víst hlægileg tilhugsun í dag þar sem ég er víst ekki sá liprasti með knöttinn. En ég fékk nú samt hrós frá fyrirliða okkar, Sigþóri Snorrasyni fyrir góða frammistöðu í leiknum við Kára. Ég tók það svona saman að ég snerti boltann þrisvar á meðan ég var inná, kannski er ég bara bestur þegar ég snerti ekki boltann.



Guttar að elta boltann. held samt að bob marley þarna sé á aldri við mig.

Ég fer örugglega suður á næstu helgi að sparka aðeins meira í tuðru. Menningarnótt verður á sama tíma, og langar mér alveg smá að kíkja á það. Ég fékk einmitt skot um daginn að ég gæti alveg eins búið undir stiga og að koma aldrei á menningarnótt. Og ég í rauninni veit eiginlega ekki hvað það er, bara helling af fólki að detta í það niðrí bæ, menningarlega. right?

En já, þetta er komið gott. Vill samt benda fólki að horfa á videoið á www.unnthor.blogspot.com , það er algjör snilld.

Adios
14. ágúst 2007 klukkan 22:16
Hákon D.
Baldur skrifar ...
Var það ekki 97' sem við lentum í örðu sæti þar sem bróðir þinn var að sjá um liðið? =] Töpuðum í úrslitaleik á móti tindastól 2-1 eða 1-0! Ég held ég eigi meira að segja ennþá liðsmyndina eitthverstaðar hérna!

Enjú, flottur leikur og til hamingju með að vera komnir í umspil!
14. ágúst 2007 klukkan 23:11
Guđmundur skrifar ...
jú þið töpuðuð 2-1 fyrir Tindastól. Tvíburarnir Hjalti og Hermann voru í liðinu. Þið urðuð sjálfum ykkur og öðrum vestfirðingum til háborinnar skammar að tapa fyrir Tindastól.!!! :)
15. ágúst 2007 klukkan 14:19
Hákon D. skrifar ...
Hákon D.Hermann og Rúnar heita ţeir víst
15. ágúst 2007 klukkan 20:00
Sigurjón skrifar ...
Ég man bara eftir 98 skandalnum þegar Gummi var þjálfarinn. Ég var settur útí kuldann rétt fyrir mót og frænka mín kom inní a-liðið í staðinn. B-liðið skipað stórmönnum einsog Ómari Hólm og Hafdísi Maríu átti undir högg að sækja og enduðu flestir leikir 2 stafa tölur og núll og með því að Hafdís fékk reisupassann frá fararstjórunum. Aðeins 1 mark var skorað fyrir b-liðið og var þar á ferð markahrólfurinn en ekki hrókurinn sem átti það mark ég. Ég rakst í boltann en þeirri sögu fylgir ekki.

Já ég kom nú hérna inná til þess að tilkynna eitt! Cascada er þýskt en ekki belgískt band,
16. ágúst 2007 klukkan 13:10
Elísa skrifar ...
blooooooooooooooooooooooggggg
27. ágúst 2007 klukkan 13:26
kristínósk skrifar ...
haaa ?? Á ég að trúa þessu .. HVAR ERU BLOGGIN HÁKON ? :o
02. september 2007 klukkan 20:56
Deco skrifar ...
Hákon, viltu vera svo vænn að blogga. þú ert góður penni og það er sóun að allt ruglið í þér komist ekki á blað. Flott blogg Btw.

Deco.
05. september 2007 klukkan 22:03
Haffi Agnarsson skrifar ...
Haffi Agnarssonskítur .. ?
07. september 2007 klukkan 23:58
Ingibjörg Elín skrifar ...
Sigurjón, að mig minnir var ég sett í liðið fyrir þig ;) Ég þótti víst betri kostur þá í markinu .. en honum skjáltlaðist :D
11. september 2007 klukkan 14:58
Haffi skrifar ...
ho ho ho
blogga?
og ja ingibjörg þú vast skömmuð í klessu það mótið..

kona+markmaður=many goals
19. október 2007 klukkan 13:30

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hákon D.
  • Netfang: mamma_tin_er_beygla@hotmail.com
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Hjúskaparstađa: Laus
  • Um mig: ég er betri en ţú

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...