Tveggja poka geit
Eins og glöggir menn tóku eftir (enginn) þá fór ég með félögum mínum til Hafnar í Hornafirði. Nokkrar staðreyndir um Höfn: Það eru 922 km frá Höfn til Ísafjarðar. Það er u.þ.b. tvisvar sinnum lengra en til Reykjavíkur. Leiðin frá Höfn til Rvk er leiðinlegri en djúpið og strandirnar til samans, og þá er mikið sagt. En allavega ferðin var í heildina held ég vel heppnuð, tjölduðum á Hellu í roki, tjölduðum á Höfn í roki, og gistum í íbúð í rvk í roki því við vorum orðnir leiðir á því að tjalda í roki.Orðaforðinn minn er orðinn reynslunni ríkari þökk sé honum Arnari Guðmundssyni. Orð eins og Sprútla, Tutla, Geit, Eins poka geit, Tveggja poka Geit, Marfló og Neinn eru dæmi um nýyrði sem komu fram í ferðinni. Vá mér líður eins og stoltinu.
Allavega við spiluðum knattspyrnu af stakri snilld og unnum mótið þónokkuð sanfærandi en þó með einu jafntefli sem hefði mátt sleppa. Dómarinn, völlurinn, boltinn, mörkin og merkingarnar voru afleitar í þessum leik og úrslitin allt þeim að kenna.
Hvað ætli sé bein loftlína frá ísafirði til Hafnar? =)
en já, ekki meira í bili, sjáumst krakkar mínir
Og gummi æ dónt gif a flæing fokk about stafsetningarvillur
06. ágúst 2007 klukkan 14:29
Hákon D.
Hákon D.
