Mér langar í kók
Ég horfði á þátt á stöð 2 áðan sem án efa markar botninn í sjónvarpi fyrr og síðar. Guiding Light er ódrepandi klassík á miðað við þennan þátt. Hann hét Pirate Master, og er um fólk sem er á ''sjóræningjaskipi'' og reynir að vera eitt eftir að hirða e-a summu. Þetta var svona svipað concept og survivor. Og survivor er einhver þreyttasti þáttur í heiminum í dag. Þessir raunvöruleikaþættir eru að tröllríða heiminum. Eru ekki allir komnir með æluna uppí kok af þeim? Amazing Race, Survivor, Temptetion Island, Bachelor, Bacholorette og hvað þeir allir nú heita og 95% þeirra úr smiðju Jerry Bruckheimer. Helvítis kaninn heldur þessu á floti bara með því að vera einfaldir og heimskir. Stupid americans.....lélegasti þáttur í heimi
Ég fór í Önundarfjörð á laugardaginn, á rokkrollu. Það var bara mjög gaman, allir í góðu skapi að spjalla og dansa. Ég held samt að næst mæti ég í lopapeysu, þunna tíglapeysan mín var ekki að meika það. En já svo á sunnudaginn var ég e-ð slappur, hélt að ég væri að pikka upp einhverja pest en sem betur fer lagaðist það eftir því sem leið á daginn.
30. júlí 2007 klukkan 22:53
Hákon D.
Hákon D.
