28. Júlí
Það eru margir nákomnir mér sem tengjast þessum degi og ætla ég bara að byrja á því að heiðra þá:)Unnþór frændi minn fagnar 21 árs afmæli sínu í dag
Sesselja amma mín hefði orðið 75 ára í dag hefði hún lifað til að sjá það
Og loks hann faðir minn dó á þessum degi fyrir 13 árum síðan.
Silly ég man ekki einu sinni eftir neinu af þessu, enda var maður svo ungur það segja allir:)
En annars ætla ég ekki að blogga um neitt spes, nema jú kvensurnar voru að spila áðan og tjellinn var á línunni mar. Kominn tími til að stelpurnar fari að girða sig í brók og trúa því að þær geti gert eitthvað. Þær voru oftar en ekki í góðum séns að minnsta kosti jafna leikinn jafnvel sigra hann en klaufaskapur og óákveðni varð þeim að falli. Þetta haukalið var með 2-3 leikmenn sem gátu e-ð en hinar voru að rotna úr lélegleika.
en já vildi bara koma þessu að ofanverðu á framfæri.
Og já svörin við getraunninni að neðan komu ekki nema bonnie tyler, nr.1 var Keri Hilson sem hljómar á öldum ljósvakans með Timbaland og nr. 3 var Natalie Horler söngkona euro-pop bandsins Cascada frá Belgíu
28. júlí 2007 klukkan 17:04
Hákon D.
Hákon D.
