Blogg fyrir fallega fólkið
daang það er erfitt að finna fyrirsögn á bloggið. ég hef fundið nýja virðingu fyrir fólki með flottar blogg-fyrirsagnir, ekki taka mark á þessari ^.Ég er að horfa á So you think you can dance í boxinu. Er það bara ég eða er þetta ekkert merkilegt? ég sé bara ekki neitt í þessum þætti sem ég gæti ekki gert. Ég er kannski ekki mesta lipurtáin i bransanum en ég er viss um að margir Jón Jónssynir gætu gert þetta shit. Þau eru bara e-ð að hlaupa um og setja hausinn á sér í mismunandi stellingar. Fyrir utan það að þetta er bara American Idol með leiðinlegri dómurum, leiðinlegri keppendum og leiðinlegri áhorfendum og leiðinlegra viðfangsefni. Og American Idol er alveg nógu helvíti leiðinlegt. Það er meira að segja breskur gaur sem sér ekkert gott. Annars talaði Heiðar Austmann félagi minn að kellingin sem er í dómnefndini hlægji svo leiðinlega og ég held að hún hafi fengið skilaboðin því hún hefur ekki hlegið bofs í öllum þættinum.
Jég er byrjaður að nota orðið tappi svona í tíma og ótíma. Ég hef samt eiginlega ekki hugmynd um hvað það þýðir. ég er svona á þeirri braut að þetta sé svona útfærsla á honda civic týpunni.
Annars er ég bara fámáll, ég er ekki jafn góður bloggari og ég hafði ýmindað mér. fyrir utan það að endurkoma mín hefur ekki fengið jafn góð viðbrögð og ég hafði vonast, ég þarf að kreista hvert einasta komment sem ég fæ. Þannig að ég segji eins og bróðir minn, endilega kommenta, það gefur blogginu tilgang.
Bless
22. júlí 2007 klukkan 22:45
Hákon D.
Hákon D.

gulbrúnbláaugu4tw ræt.
blee