New Blog

Ég fór á mín víðfrægu hugsunarleiðangra um daginn og fór að pæla í húsbýlum. Svona drasl sem gamla fólkið kaupir fyrir ellilífeyrinn. Allt gott og blessað með það fyrir utan eitt atriði sem fer í mínar fínustu. Af hverju þurfa þeir alltaf að heita einhverjum asnalegum nöfnum? Það kom einn uppí golfskála í dag sem hét Gullmolinn. Það er svosem ekki það versta því að maður hefur séð nöfn eins og Rósavagninn, Ástarfleyið og Sigrún. Hver skýrir húsbílinn sinn Sigrún? og ekki bara skýra hann heldur að skrifa það með stórum skrautstöfum framan og aftan á bílinn svo ALLIR fái að vita að húsbíllinn á heimilinu heitir Rósavagninn. Maður fær líka bara klígju að sjá 75 ára gamalt fólk á ástarfleyinu.

Gullvagninn?

Allavega ég er vonandi að fara suður að spila við kjammana í Afríku sem eru að gera allt vitlaust í íslenskri knattspyrnu þessa daganna. Ráðast á hvorn annan með slökkvitæki og ég veit ekki hvað og hvað. Víkingasveitin verður í code red viðbragsstöðu tilbúin að tjóðra Saint Paul Edeh besta vin Snævars niður ef til þarf. Annars er ekki boðlegt að spila á gerfigrasinu í laugardal þar sem Afríka Utd kallar sinn heimavöll. Ef ég spila eitthvað þá kem ég með 2 og 3. stigs bruna til baka. Svo er 2. flokkurinn heima á torfnesinu á móti Selfossiog lofa ég nógu af fjöri. Síðast voru e-r 11 gul spjöld á 10 mínutum og eitt rautt þegar búið var að flauta þegar einn hnakkinn sparkaði í lendarnar á Hundinum. Við vonum bara að hann haldi sér á mottunni og fái bara gult í þessum leik en það er við ramman reip að draga. Annars held ég að þeir Selfyssingar mæti ekkert því að ég heyrði á Fm í morgun að það væri sprengjutilboð á ljósakortum á Ibiza sólbaðsstofu.

Talandi um FM. Ef helv. starfsmennirnir þarna myndu nú hlusta aðeins á stöðina þá myndi þeir kannski hætta að spila þessi viðbjóðslegu lög eins og allt MIKA, Fergie vibbi og Justin Timberlake. já þið heyrðuð rétt. Justin Timberlake er ÖMURLEGUR. Hann bara vælir e-ð í míkrófóninn og svo er hann mixaður í klessu og látinn lýta vel út. Fyrir utan það að öll lögin hans eru svona 3 setningar sem rúlla í gegnum allt lagið.

En já, nóg komið af rugli, adios turdnuggets.


Þessi minnir mann bara á Kjartan á skólaböllunum með kókdós í hönd:)
20. júlí 2007 klukkan 01:15
Hákon D.
kristínósk skrifar ...
híhíh´hi, ég mætti Gullmolanum um daginn, eeeeen já alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín, seegi bara það sama og allir í kommentunum í hinu blogginu ég var á sömu leið og Regina ? ;) Allavega gott þetta ;) ... eeen hey jó Eru vídjóin í stað ps.1 og 2 ?

-kristín :)
20. júlí 2007 klukkan 01:53
Hákon skrifar ...
jáá það var so 5 mánuðir síðan skoh;)
20. júlí 2007 klukkan 01:57
kristínósk skrifar ...
omg ;) þannig vídjóin eru totly inn núna eða ;) ?
20. júlí 2007 klukkan 01:59
Arna Sif skrifar ...
Hákon says:
hey það er komið að skuldadögum
Hákon says:
ég kommenta á hvert einasta blogg hjá þér :D

So here you goo :) nice
21. júlí 2007 klukkan 00:52
Jón I. skrifar ...
já, er hrifin af þessu videoi, en já, við getum nánast lofað 2-3 fótbrotum í torfnesgrifjunni kl 2. á morgun, endilega að mæta og sjá Hákon Odd reka Hundinn útaf og hlusta á Arnar G. reita af sér brandarana uppi í stúku :)
21. júlí 2007 klukkan 19:58
Anna Portia skrifar ...
biddu biddu afhverju erum vi[ ekki i linkum ??? HA
:D
21. júlí 2007 klukkan 22:47
Elísa skrifar ...
HAHA þessi gæji er snilld!!
22. júlí 2007 klukkan 00:22
Bogdan Piotrisk skrifar ...
teiknimyndavideoið þitt um daginn saug feitann, en þetta er algjör snilld. í upphafi video-sins fannst mér þetta alveg getað verið Yan á Flateyri
23. júlí 2007 klukkan 00:49

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hákon D.
  • Netfang: mamma_tin_er_beygla@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Hjúskaparstaða: Laus
  • Um mig: ég er betri en þú

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...