14ágúst

2 deild?

BÍ/Bolungarvík sigraði Kára örugglega í dag 3-1 á skeiðisvelli í dag. Augnablik tapaði 1-2 fyrir Víði í Garði. Það þýðir að BÍ/Bol eru komnir í úrslitakeppni 3.deildar og eiga þar að etja kappi við Gróttu. 2. deildin er byrjuð að sjást við sjóndeildarhringinn og markmiðið sem stefnt var á síðan nýr þjálfari var ráðinn til liðsins. Ljóst er að með honum hefur knattspyrna meistaraflokks verið lyft uppá hærra plan og er þetta margt honum að þakka. En já, 25 ágúst kl. 14:00, þú þar?


Stífar æfingar í vor að skila árangri? Portúgal 2007


Ég og Guðmundur bróðir minn vorum að rifja upp þegar við fórum saman á króksmót. Það var árið 1996, sem er fyrir 11 árum! ég er orðinn einum of gamall, fer bráðlega að fá gráa fiðringinn. En þá var sko gaman að spila fótbolta, ég skoraði einhver 8-10 mörk á mótinu sem þykir víst hlægileg tilhugsun í dag þar sem ég er víst ekki sá liprasti með knöttinn. En ég fékk nú samt hrós frá fyrirliða okkar, Sigþóri Snorrasyni fyrir góða frammistöðu í leiknum við Kára. Ég tók það svona saman að ég snerti boltann þrisvar á meðan ég var inná, kannski er ég bara bestur þegar ég snerti ekki boltann.



Guttar að elta boltann. held samt að bob marley þarna sé á aldri við mig.

Ég fer örugglega suður á næstu helgi að sparka aðeins meira í tuðru. Menningarnótt verður á sama tíma, og langar mér alveg smá að kíkja á það. Ég fékk einmitt skot um daginn að ég gæti alveg eins búið undir stiga og að koma aldrei á menningarnótt. Og ég í rauninni veit eiginlega ekki hvað það er, bara helling af fólki að detta í það niðrí bæ, menningarlega. right?

En já, þetta er komið gott. Vill samt benda fólki að horfa á videoið á www.unnthor.blogspot.com , það er algjör snilld.

Adios
14. ágúst 2007 klukkan 22:16
Hákon D.
10 athugasemdir
08ágúst

Hæ þú

Ég hef eiginlega ekkert betra að gera en að blogga, en fyrir þessa 3 sem lesa bloggið ætla ég þá bara að gera það.

Ég er búinn að vera grjótsofandi í allan dag og er því vakandi alltof seint og á að mæta í vinnuna eftir tæpa 5 tíma jeijj. Ég gerði og er að gera eitthvað sem ég geri ekki oft, ég hlustaði eingöngu á rólega tónlist og var svona smá með sjálfum mér í rúminu sem ég er ekki búinn að nenna að hreyfa mig úr í allan dag. Oasis, Pearl Jam og fleiri góðir, svosem kannski ekki rólegir en svona seðjandi og einföld tónlist. Maður fór bara svona á hugarreik, um ''gömlu'' tímanna (fyrir 2 árum r sum) og fortíðinni, ættingjana sem eru ennþá á jörðinni og þeir sem eru ekki á jörðinni. Mér heyrðist móðir mín góða einmitt vera að tala um það að hún ætti nú brúðkaupsafmæli með pabba 31.júlí og bróðir minn bloggaði einmitt um það, Vil bara óska henni hjartanlega til hamingju með það, og pabba þá líka ef hann lesur bloggið mitt. Í mánuðinum (júlí) fór ég með múttu og Gumma í kirkjugarðinn innfrá því þann dag hefði amma mín hún Sesselja orðið 75 ára gömul minnir mig rétt og einnig hafði faðir minn andast þann dag. Við fórum svona að spá í soldið ógnvekjandi hlut, af hvejru það sé bókstaklega alltaf rok í þessum blessaða kirkjugarði, held ð hann sé eitthvað haunted. Annars finnst mér voða þægilegt að koma í kirkjugarða, finnst þeir alltaf vera svona rólegur staður, þótt að 50 manns séu í honum í einu.

Skólinn fer að ganga í garð, og mikið guðs lifandi verð ég feginn. Er soldið farinn að sakna hans, og svei mér þá ef ég ætla ekki að standa mig betur í honum næstu önn. 1 fall og 2 endurtekningar er ekkert til að gorta sig af, hefði alveg getað staðið mig mun betur því að skólinn er nú ekki það erfiður. Ég á samt örugglega eftir að segja eftir mánuð hversu mikið mig langar að byrja að vinna aftur og hætta þessu skólarugli. Ætla samt bara að stefna á stúdent vor 2010, og þér er boðið hver sem þú ert, og eftir það háskóli? draumórar hver veit.

Fótboltinn er líka í fullu gangi, og sénsinn fyrir BÍ/Bolungarvík að komast upp í 2.deild er núna, því að ég veit að við erum með fullt af leikmönnum sem eiga á hærra leveli en í 3. deild. Vona svo innilega að (við) förum upp, set það innan sviga þar sem ég á nú bara 3 deildar leiki fyrir þetta lið hehe.

En vá, massablogg, sjáumst einhversstaðar

Mér langar að verða professional sunbather hehe

08. ágúst 2007 klukkan 02:06
Hákon D.
5 athugasemdir
07ágúst

Ein lítil

Getraun fyrir Gumma svo hann hafi eitthvað að gera, hún er samt auðveld


hver er leikvangurinn?
07. ágúst 2007 klukkan 14:36
Hákon D.
2 athugasemdir
06ágúst

Tveggja poka geit

Eins og glöggir menn tóku eftir (enginn) þá fór ég með félögum mínum til Hafnar í Hornafirði. Nokkrar staðreyndir um Höfn: Það eru 922 km frá Höfn til Ísafjarðar. Það er u.þ.b. tvisvar sinnum lengra en til Reykjavíkur. Leiðin frá Höfn til Rvk er leiðinlegri en djúpið og strandirnar til samans, og þá er mikið sagt. En allavega ferðin var í heildina held ég vel heppnuð, tjölduðum á Hellu í roki, tjölduðum á Höfn í roki, og gistum í íbúð í rvk í roki því við vorum orðnir leiðir á því að tjalda í roki.
  Orðaforðinn minn er orðinn reynslunni ríkari þökk sé honum Arnari Guðmundssyni. Orð eins og Sprútla, Tutla, Geit, Eins poka geit, Tveggja poka Geit, Marfló og Neinn eru dæmi um nýyrði sem komu fram í ferðinni. Vá mér líður eins og stoltinu.
 Allavega við spiluðum knattspyrnu af stakri snilld og unnum mótið þónokkuð sanfærandi en þó með einu jafntefli sem hefði mátt sleppa. Dómarinn, völlurinn, boltinn, mörkin og merkingarnar voru afleitar í þessum leik og úrslitin allt þeim að kenna.


Hvað ætli sé bein loftlína frá ísafirði til Hafnar? =)

en já, ekki meira í bili, sjáumst krakkar mínir

Og gummi æ dónt gif a flæing fokk about stafsetningarvillur
06. ágúst 2007 klukkan 14:29
Hákon D.
4 athugasemdir
30júlí

Mér langar í kók

Ég horfði á þátt á stöð 2 áðan sem án efa markar botninn í sjónvarpi fyrr og síðar. Guiding Light er ódrepandi klassík á miðað við þennan þátt. Hann hét Pirate Master, og er um fólk sem er á ''sjóræningjaskipi'' og reynir að vera eitt eftir að hirða e-a summu. Þetta var svona svipað concept og survivor. Og survivor er einhver þreyttasti þáttur í heiminum í dag. Þessir raunvöruleikaþættir eru að tröllríða heiminum. Eru ekki allir komnir með æluna uppí kok af þeim? Amazing Race, Survivor, Temptetion Island, Bachelor, Bacholorette og hvað þeir allir nú heita og 95% þeirra úr smiðju Jerry Bruckheimer. Helvítis kaninn heldur þessu á floti bara með því að vera einfaldir og heimskir. Stupid americans.....

lélegasti þáttur í heimi

Ég fór í Önundarfjörð á laugardaginn, á rokkrollu. Það var bara mjög gaman, allir í góðu skapi að spjalla og dansa. Ég held samt að næst mæti ég í lopapeysu, þunna tíglapeysan mín var ekki að meika það. En já svo á sunnudaginn var ég e-ð slappur, hélt að ég væri að pikka upp einhverja pest en sem betur fer lagaðist það eftir því sem leið á daginn.


30. júlí 2007 klukkan 22:53
Hákon D.
5 athugasemdir
28júlí

28. Júlí

Það eru margir nákomnir mér sem tengjast þessum degi og ætla ég bara að byrja á því að heiðra þá:)

Unnþór frændi minn fagnar 21 árs afmæli sínu í dag

Sesselja amma mín hefði orðið 75 ára í dag hefði hún lifað til að sjá það

Og loks hann faðir minn dó á þessum degi fyrir 13 árum síðan.

Silly ég man ekki einu sinni eftir neinu af þessu, enda var maður svo ungur það segja allir:)

En annars ætla ég ekki að blogga um neitt spes, nema jú kvensurnar voru að spila áðan og tjellinn var á línunni mar. Kominn tími til að stelpurnar fari að girða sig í brók og trúa því að þær geti gert eitthvað. Þær voru oftar en ekki í góðum séns að minnsta kosti jafna leikinn jafnvel sigra hann en klaufaskapur og óákveðni varð þeim að falli. Þetta haukalið var með 2-3 leikmenn sem gátu e-ð en hinar voru að rotna úr lélegleika.

en já vildi bara koma þessu að ofanverðu á framfæri.

Og já svörin við getraunninni að neðan komu ekki nema bonnie tyler, nr.1 var Keri Hilson sem hljómar á öldum ljósvakans með Timbaland og nr. 3 var Natalie Horler söngkona euro-pop bandsins Cascada frá Belgíu

28. júlí 2007 klukkan 17:04
Hákon D.
4 athugasemdir
26júlí

Getraun 2

Unnþór bað um stelpugetraun:)

nefnið skonsurnar.




Jæja þessi er töluvert léttari. Minni á gáfaðra getraunina fyrir neðan:)
26. júlí 2007 klukkan 20:43
Hákon D.
8 athugasemdir
25júlí

Getraunir

Djöfulsins drasl er þetta, dettur alltaf út

Allavega getraun, nenni ekki að blogga þar sem fólk virðist bara vera með bögg:)

Hvaða leikvangar eru þetta? skora á Guðmund Guðjónsson að geta þetta.

Allavega, þá ætlaði ég að koma með stelpugetraun líka en þetta drasl dettur alltaf út þannig að næst bra:)
25. júlí 2007 klukkan 23:09
Hákon D.
12 athugasemdir
22júlí

Blogg fyrir fallega fólkið

daang það er erfitt að finna fyrirsögn á bloggið. ég hef fundið nýja virðingu fyrir fólki með flottar blogg-fyrirsagnir, ekki taka mark á þessari ^.

Ég er að horfa á So you think you can dance í boxinu. Er það bara ég eða er þetta ekkert merkilegt? ég sé bara ekki neitt í þessum þætti sem ég gæti ekki gert. Ég er kannski ekki mesta lipurtáin i bransanum en ég er viss um að margir Jón Jónssynir gætu gert þetta shit. Þau eru bara e-ð að hlaupa um og setja hausinn á sér í mismunandi stellingar. Fyrir utan það að þetta er bara American Idol með leiðinlegri dómurum, leiðinlegri keppendum og leiðinlegri áhorfendum og leiðinlegra viðfangsefni. Og American Idol er alveg nógu helvíti leiðinlegt. Það er meira að segja breskur gaur sem sér ekkert gott. Annars talaði Heiðar Austmann félagi minn að kellingin sem er í dómnefndini hlægji svo leiðinlega og ég held að hún hafi fengið skilaboðin því hún hefur ekki hlegið bofs í öllum þættinum.

Jég er byrjaður að nota orðið tappi svona í tíma og ótíma. Ég hef samt eiginlega ekki hugmynd um hvað það þýðir. ég er svona á þeirri braut að þetta sé svona útfærsla á honda civic týpunni.

Annars er ég bara fámáll, ég er ekki jafn góður bloggari og ég hafði ýmindað mér. fyrir utan það að endurkoma mín hefur ekki fengið jafn góð viðbrögð og ég hafði vonast, ég þarf að kreista hvert einasta komment sem ég fæ. Þannig að ég segji eins og bróðir minn, endilega kommenta, það gefur blogginu tilgang.

Bless


22. júlí 2007 klukkan 22:45
Hákon D.
7 athugasemdir
20júlí

New Blog

Ég fór á mín víðfrægu hugsunarleiðangra um daginn og fór að pæla í húsbýlum. Svona drasl sem gamla fólkið kaupir fyrir ellilífeyrinn. Allt gott og blessað með það fyrir utan eitt atriði sem fer í mínar fínustu. Af hverju þurfa þeir alltaf að heita einhverjum asnalegum nöfnum? Það kom einn uppí golfskála í dag sem hét Gullmolinn. Það er svosem ekki það versta því að maður hefur séð nöfn eins og Rósavagninn, Ástarfleyið og Sigrún. Hver skýrir húsbílinn sinn Sigrún? og ekki bara skýra hann heldur að skrifa það með stórum skrautstöfum framan og aftan á bílinn svo ALLIR fái að vita að húsbíllinn á heimilinu heitir Rósavagninn. Maður fær líka bara klígju að sjá 75 ára gamalt fólk á ástarfleyinu.

Gullvagninn?

Allavega ég er vonandi að fara suður að spila við kjammana í Afríku sem eru að gera allt vitlaust í íslenskri knattspyrnu þessa daganna. Ráðast á hvorn annan með slökkvitæki og ég veit ekki hvað og hvað. Víkingasveitin verður í code red viðbragsstöðu tilbúin að tjóðra Saint Paul Edeh besta vin Snævars niður ef til þarf. Annars er ekki boðlegt að spila á gerfigrasinu í laugardal þar sem Afríka Utd kallar sinn heimavöll. Ef ég spila eitthvað þá kem ég með 2 og 3. stigs bruna til baka. Svo er 2. flokkurinn heima á torfnesinu á móti Selfossiog lofa ég nógu af fjöri. Síðast voru e-r 11 gul spjöld á 10 mínutum og eitt rautt þegar búið var að flauta þegar einn hnakkinn sparkaði í lendarnar á Hundinum. Við vonum bara að hann haldi sér á mottunni og fái bara gult í þessum leik en það er við ramman reip að draga. Annars held ég að þeir Selfyssingar mæti ekkert því að ég heyrði á Fm í morgun að það væri sprengjutilboð á ljósakortum á Ibiza sólbaðsstofu.

Talandi um FM. Ef helv. starfsmennirnir þarna myndu nú hlusta aðeins á stöðina þá myndi þeir kannski hætta að spila þessi viðbjóðslegu lög eins og allt MIKA, Fergie vibbi og Justin Timberlake. já þið heyrðuð rétt. Justin Timberlake er ÖMURLEGUR. Hann bara vælir e-ð í míkrófóninn og svo er hann mixaður í klessu og látinn lýta vel út. Fyrir utan það að öll lögin hans eru svona 3 setningar sem rúlla í gegnum allt lagið.

En já, nóg komið af rugli, adios turdnuggets.


Þessi minnir mann bara á Kjartan á skólaböllunum með kókdós í hönd:)
20. júlí 2007 klukkan 01:15
Hákon D.
8 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hákon D.
  • Netfang: mamma_tin_er_beygla@hotmail.com
  • Staður: Ísafjörður
  • Hjúskaparstaða: Laus
  • Um mig: ég er betri en þú

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...